track name

Þögnin heyrir allt

album and band name

from Menn Ársins by Menn Ársins

 
about
Go to: www.youtube.com/watch?v=IhaoxFCOz6k to watch a live version of the track.
lyrics
Ekkert breytist í leikhúsi Bakkusar
reglubræður og systur eru allsstaðar
með hendurnar, krosslagðar
um glösin, spenna þrútnar greiparnar

Ljósin kvikna, tónlistin fjarar út
ég sest niður dæsi og drekk af stút
hélt það út, engin sút
að spila trúð fyrir dræsu og drykkjuhrút

Og þögnin heyrir allt
hún hlustar þúsundfalt
hún efar engan, hæðist aldrei
þögnin heyrir allt

Fyrir utan vornóttin heilsar mér
morgunroðinn, lætur bíða eftir sér
enginn sér hvað ég er
sannarlega einn þegar þú ert ekki hér

þögnin hikar þráir að segja frá
eilíflega dæmd til að hlusta á
alla þá sem aðeins þrá
þetta eitt sem þeir aldrei fá

Og þögnin heyrir allt
hlustar þúsundfalt
hún efar engan, hæðist aldrei
þögnin heyrir allt
credits
from Menn Ársins, released 29 September 2008
Song & lyrics: Sváfnir Sigurðarson


Haraldur Vignir: keyboards, background vocals
Kjartan Guðnason: drums, percussion
Sigurdór Guðmundsson: electric bass
Sváfnir Sigurðarson: acoustic guitar, vocals

Guðmundur Hafsteinsson: trumpet
license
All rights reserved
feed
Feeds for this album, this artist
Menn Ársins Cover Art

discography

contact / help

For help with downloads, click here.

For all other inquiries, click here.