track name

Sjáumst fljótlega aftur

album and band name

from Menn Ársins by Menn Ársins

 
lyrics
Svo seint í nóvember
þú bægðir gráum skýjum í burtu frá mér
þá svo agnarsmá
fallegri en allt sem augað sá

Og tíminn tók ofan augnablikin stilltu sér í röð
því allir vildu fylgja þér á næstu stoppistöð
og skyndilega varstu komin þangað

Svo hljótt - dagur og nótt
frá okkur hurfu árin undra fljótt
hér - það fer sem fer
líkt og allar dyr í einu lokist þér

Og þótt þú sjáir ekkert ljós við enda ganganna
það gildir eins um þig og hina ferðalangana
viljinn kemur þér þangað

Rót - allt upp í mót
lífið virðist straumhart skítugt fljót
en brátt- þú finnur sátt
og sérð að tilveran er meira en blátt

Og ef ég ekki man það fyrr en allt er orðið hljótt
ég nota tækifærið þakka pent, býð góða nótt
því ég veit við sjáumst fljótlega aftur
því mikill en jafnframt hulinn kraftur
heldur okkur saman alla tíð
credits
from Menn Ársins, released 29 September 2008
Song & lyrics: Sváfnir Sigurðarson

Haraldur Vignir: electric guitar
Kjartan Guðnason: drums
Sigurdór Guðmundsson: fretless bass
Sváfnir Sigurðarson: acoustic guitar, harmonica, vocals
license
All rights reserved
feed
Feeds for this album, this artist
Menn Ársins Cover Art

discography

contact / help

For help with downloads, click here.

For all other inquiries, click here.