track name

Þegar augu okkar mætast

album and band name

from Menn Ársins by Menn Ársins

 
lyrics
Mín spor voru stigin sum í blindni
en spor mín lágu á endanum til þín
mín ást, hún dreifðist jafnt á ekkert
en nú lifir hún í okkur ástin mín

Mín orð mörg sögð í hálfkæringi
en orðin öðlast meiningu með þér
mín verk voru unnin öll án forsjár
nú finnst mér ég geta hvað sem er

og þegar augu okkar mætast
veit ég fyrir víst
að ástin fær mig til að vera á lífi
finn það svo vel
ég veit það svo vel


Mín þrá svo furðu treg í taumi
en þrá mín fann sér bólfestu hjá þér
mín ljóð svo laus við lýrík stundum
en öll þau öðlast líf hjá þér

Þegar augu okkar mætast
veit ég hvað við er átt
þegar skáldin yrkja um hamingju og fegurð
finn það svo vel
veit það svo vel

Þegar augu okkar mætast
veit ég fyrir víst
að ástin fær mig til að vera á lífi
finn það svo vel
veit það svo vel
credits
from Menn Ársins, released 29 September 2008
Song & lyrics: Sváfnir Sigurðarson

Haraldur Vignir: keyboards, background vocals
Kjartan Guðnason: drums
Sigurdór Guðmundsson: fretless bass
Sváfnir Sigurðarson: acoustic guitar, vocals
license
All rights reserved
feed
Feeds for this album, this artist
Menn Ársins Cover Art

discography

contact / help

For help with downloads, click here.

For all other inquiries, click here.